Í Keldudal í Hegranesi búa Guðrún Lárusdóttir og Þórarinn Leifsson. Þau eiga þrjú uppkomin börn Þórdísi, Sunnu og Þorra. Í Keldudal eru 70 kýr auk 90 annarra nautgripa; kvígna, nauta og kálfa, 80 kindur, 13 geitur og 10 hross. Íslenskar hænur, 2 íslenskir hundar og kettir. Við leigjum út sumararhús og herbergi með eldunaraðstöðu.
Gudrún and Toti live in Keldudalur farm in Skagafjordur. They have three grown children, Thordis, Sunna and Thorri. The live stock is 10 horses, 70 dairy cows, 90 cattle, 80 sheep and 13 goats. Icelandic sheep dogs and catst are also included.
In Keldudalur you can rent a cottage / summerhouse. We offer both made-up beds and sleeping bag accommodation with cooking facilities.
|
Fréttir
Heitur pottur við Leifshús
16. júlí 2014 New hot tub, for 8 persons
Þá er búið að setja upp heitan pott við Leifshús. Potturinn er með þægilegum sætum og er fyrir 8 manns.
Leifshús
01. apríl 2014
Tóti og Gunna eru nú eigendur Leifshúss, sem er gamla íbúðarhúsið í Keldudal. Það var upphaflega byggð árið 1935 en var endurgert árið 1994. Þá var byggð önnur hæð ofan á húsið, það endurgert að innan og klætt að utan. Það var Kristín húsfreyja og fyrrverandi bóndi í Keldudal sem seldi húsið. Leifshús verður leigt úr sem sumarhús, það er 145 m2, hlýlegt og fallegt hús með góða sál. Tilvalið fyrir 2-3 fjölskyldur eða litla hópa.
Ísold 2010
27. júní 2010 fimmtánda folald ÍsoldarÍsold frá Kirkjubæjarklaustri II kastaði sínu fimmtánda afkvæmi þann 26. júní. Það er brún hryssa undan Þey frá Prestsbæ. Þrjú afkvæmi Ísoldar hafa verið sýnd í kynbótadómi; Glóð frá Keldudal með 7,8 í aðaleinkunn og Ísól og Örn frá Keldudal með 8,23 í aðaleinkunn. Örn var sýndur í Svíþjóð í vor og fékk þá 8,04 fyrir byggingu og 8,35 fyrir kosti.
Perla frá Keldudal
10. júní 2010 fékk 7,94 í aðaleinkunn
Raftsson frá Keldudal
17. mars 2010 á aðalfundi Félags sauðfjárbændaRaftsson frá Keldudal var besti veturgamli hrúturinn í Skagafiðri.
Panda frá Keldudal
10. mars 2010 mjólkaði 10.126 kg árið 2009Panda fékk bikar á aðalfundi Félags kúbænda í Skagafiðri
Katrín Jakobsdóttir og Ragnheiður Traustadóttir
31. júlí 2009 Við fengum góða heimsókn í gær þegar menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, kom og leit á fornleifarnar í Keldudal
Flór grafinn 2007
23. júlí 2009 Fornleifauppgröftur í garðinumFornleifafræðingar á vegum Hólarannsóknarinnar hafa verið hér í Keldudal frá 8. júní við uppgröft á fjósi frá 10. öld. Í ljós hefur komið 18-20 bása fjós.
09. febrúar 2008 Meðalnyt í Keldudal 6.882 kgMeðalnyt íslenskra kúa árið 2007 var 5.480 kg, en Keldudalur er nú nítjánda afurðahæsta bú landsins. Meðalnyt skagfirskra kúa er 5.836 kg og slá Skagfirðingar öllum öðrum út í afurðum þetta árið. Rúmlega 23 þúsund árskýr eru á landinu öllu.
Fluga frá Keldudal
12. janúar 2008 Keldudalur Hrossaræktarbú SkagafjarðarKeldudalsbúið var valið hrossaræktarbú ársins í Skagafirði og átti glæsilegasta folaldið að mati áhorfenda á folaldasýningunni.
Ísól og Sigfús Brynjar á HM
16. ágúst 2007 á HM í HollandiÍsól var í þriðja sæti í 6 vetra flokki.
Ísar og Vignir
01. ágúst 2007 í þjálfun hjá VigniÍsar frá Keldudal er með 8,61 í aðaleinkunn í kynbótadómi
|
16. júlí 2014 New hot tub, for 8 persons
Heitur pottur við Leifshús
Þá er búið að setja upp heitan pott við Leifshús. Potturinn er með þægilegum sætum og er fyrir 8 manns.
01. apríl 2014
Leifshús
Tóti og Gunna eru nú eigendur Leifshúss, sem er gamla íbúðarhúsið í Keldudal. Það var upphaflega byggð árið 1935 en var endurgert árið 1994. Þá var byggð önnur hæð ofan á húsið, það endurgert að innan og klætt að utan. Það var Kristín húsfreyja og fyrrverandi bóndi í Keldudal sem seldi húsið. Leifshús verður leigt úr sem sumarhús, það er 145 m2, hlýlegt og fallegt hús með góða sál. Tilvalið fyrir 2-3 fjölskyldur eða litla hópa.
27. júní 2010 fimmtánda folald Ísoldar
Ísold 2010
Ísold frá Kirkjubæjarklaustri II kastaði sínu fimmtánda afkvæmi þann 26. júní. Það er brún hryssa undan Þey frá Prestsbæ. Þrjú afkvæmi Ísoldar hafa verið sýnd í kynbótadómi; Glóð frá Keldudal með 7,8 í aðaleinkunn og Ísól og Örn frá Keldudal með 8,23 í aðaleinkunn. Örn var sýndur í Svíþjóð í vor og fékk þá 8,04 fyrir byggingu og 8,35 fyrir kosti.
10. júní 2010 fékk 7,94 í aðaleinkunn
Perla frá Keldudal
|