Í Keldudal í Hegranesi búa Guðrún Lárusdóttir og Þórarinn Leifsson. Þau eiga þrjú uppkomin börn Þórdísi, Sunnu og Þorra. Í Keldudal eru 70 kýr auk 90 annarra nautgripa; kvígna, nauta og kálfa, 80 kindur, 13 geitur og 10 hross. Íslenskar hænur, 2 íslenskir hundar og kettir. Við leigjum út sumararhús og herbergi með eldunaraðstöðu.
Gudrún and Toti live in Keldudalur farm in Skagafjordur. They have three grown children, Thordis, Sunna and Thorri. The live stock is 10 horses, 70 dairy cows, 90 cattle, 80 sheep and 13 goats. Icelandic sheep dogs and catst are also included.
In Keldudalur you can rent a cottage / summerhouse. We offer both made-up beds and sleeping bag accommodation with cooking facilities.
|
22.02.2007 Afurðamet hjá kúnum í Keldudal 2006 53 árskýr í Keldudal mjólkuðu að meðaltali 6.310 kg árið 2006. Prótein% var 3,45 og fitu% 4,35. Við erum X. hæsta búið í Skagafirði mælt í verðefnum, eða 492 kg á árskú.
Það var Lukka sem mjólkaði mest 10.008 kg eða 729 kg af verðefnum, þ.e. fitu og próteini. Lukka var í 4. sæti yfir afurðahæstu kýr í Skagafirði árið 2006. Lukka er með 119 stig í Bluppi.
Til gamans má geta þess að þegar fyrst var vigtað í Keldudal árið 1992 voru 27,6 árskýr og meðalnytin 4.095 kg. Í samlag fóru 294 þús.lítrar árið 2006 miðað við 121 þús.lítra árið 1996.
Við eru í 69. sæti yfir landið í meðalnyt en vorum í 75. sæti 2005.
Sauðfjárræktin Meðalfallþungi lamba í Keldudal var 19,1 kg haustið 2006 (18,3 2005). Fyrir gerð hlutu 185 lömb 10,22 og eru í ca. 20 sæti yfir landið, en fyrir fitu 7,90. Kjöt eftir hverja á var að meðaltali 34,0 kg, (32,8 2005) sem er ca. 20. sæti yfir landið. Hlutfall vöðva og fitu er 1,29 en var 1,34 árið 2005.
|
16. júlí 2014 New hot tub, for 8 persons
Heitur pottur við Leifshús
Þá er búið að setja upp heitan pott við Leifshús. Potturinn er með þægilegum sætum og er fyrir 8 manns.
01. apríl 2014
Leifshús
Tóti og Gunna eru nú eigendur Leifshúss, sem er gamla íbúðarhúsið í Keldudal. Það var upphaflega byggð árið 1935 en var endurgert árið 1994. Þá var byggð önnur hæð ofan á húsið, það endurgert að innan og klætt að utan. Það var Kristín húsfreyja og fyrrverandi bóndi í Keldudal sem seldi húsið. Leifshús verður leigt úr sem sumarhús, það er 145 m2, hlýlegt og fallegt hús með góða sál. Tilvalið fyrir 2-3 fjölskyldur eða litla hópa.
27. júní 2010 fimmtánda folald Ísoldar
Ísold 2010
Ísold frá Kirkjubæjarklaustri II kastaði sínu fimmtánda afkvæmi þann 26. júní. Það er brún hryssa undan Þey frá Prestsbæ. Þrjú afkvæmi Ísoldar hafa verið sýnd í kynbótadómi; Glóð frá Keldudal með 7,8 í aðaleinkunn og Ísól og Örn frá Keldudal með 8,23 í aðaleinkunn. Örn var sýndur í Svíþjóð í vor og fékk þá 8,04 fyrir byggingu og 8,35 fyrir kosti.
10. júní 2010 fékk 7,94 í aðaleinkunn
Perla frá Keldudal
|