Fyrri mynd
Nsta mynd
Ok
Velkomin heimasuna okkar. Vi notum vefkkur (e. cookies) til ess a bta upplifun na og greina umfer um suna. Me v a nota vefsuna samykkir notkun vefkkum og skilmla okkar.
Keldudalur

Í Keldudal í Hegranesi búa Guðrún Lárusdóttir og Þórarinn Leifsson. Þau eiga þrjú uppkomin börn Þórdísi, Sunnu og Þorra. Í Keldudal eru 70 kýr auk 90 annarra nautgripa; kvígna, nauta og kálfa, 80 kindur, 13 geitur og 10 hross. Íslenskar hænur, 2 íslenskir hundar og kettir. Við leigjum út sumararhús og herbergi með eldunaraðstöðu.

 Gudrún and Toti live in Keldudalur farm in Skagafjordur.  They have three grown children, Thordis, Sunna and Thorri. The live stock is 10 horses, 70 dairy cows, 90 cattle, 80 sheep and 13 goats. Icelandic sheep dogs and catst are also included.

In Keldudalur you can rent a cottage / summerhouse.  We offer both made-up beds and sleeping bag accommodation with cooking facilities.

Kort af Keldudal

 

Fréttir

22.02.2007
Afurðamet hjá kúm og ám í Keldudal 2006
53 árskýr mjólkuðu að meðaltali 6.310 kg eða 492 kg af verðefnum, þ.e. fitu og prótieini. Mest mjólkaði Lukka 10.008 kg sem gaf 729 af verðefnum.
Meðalvigt 185 lamba var 19,2 kg en kjöt eftir á var 34,0 kg. meira

20.02.2007
Fregn hjá Kristínu
Fregn frá Keldudal er nú í tamningu hjá Kristínu og Brandi á Syðri-Fljótum. Fregn er á fjórða vetri undan Ísold frá Keldudal og Eið frá Oddhól. meira

07.05.2006
Ísar hækkar í kynbótadómi
Vigni Jónasson og Ísar frá Keldudal gerðu það gott um helgina í Svíþjóð. Birgitta Ibert eigndi hans er að sjálfsögðu í skýjunum enda segist hún hugsa um Ísar eins og barnið sitt og allt hennar líf snýst um hann. Dómur Ísars er hér.

02.04.2006
Ísar í þjálfun hjá Vigni
Ísar frá Keldudal er sem fyrr í þjálfun hjá Vigni Jónassyni.  Ísar er nú með 126 stig í Bluppinu og hefur lækkað um 2 stig frá fyrra ári.  Nú styttist í að fyrstu afkvæmi hans verði tamin og verður spennandi að fylgjast með þeim.
Ísar fékk í kynbótadómi vorið 2005 fyrir sköpulag 8,14 og hæfileika 8,51 í aðaleinkunn 8,37.
Sjá
dóma og myndir:

25.03.2006
Tóti fær Ferguson
Auk þess tvær sláttuvélar, fjórskera vendiplóg og herfi.
mynd

20.02.2006
Afurðamet hjá kúnum í Keldudal
54 árskýr í Keldudal mjólkuðu að meðaltali 6.136 kg árið 2005.
Það var Lukka sem mjólkaði mest 9.139 kg eða 707 kg af verðefnum, þ.e. fitu og próteini.  Mestum verðefnum skilaði Búkolla 713 kg með 9.022 kg ársnyt.

meira

20.02.2006
Sauðfjárræktin 2005
Meðalfallþungi lamba í Keldudal var 18,3 kg haustið 2005 (18,8 kg árið 2004 sem var met).
meira

06. apríl 2005
Mynd af Soldáni frá Keldudal
meira

21. mars 2005
Lóði frá Keldudal efstur
Kynbótahrúturinn Lóði frá Keldudal var besti veturgamli hrúturinn í Skagafirði haustið 2004. Í öðru sæti var Hylur frá Keldudal, en hrútarnir eru undan Lóða og Hyl frá Hesti.  Raðað er í sæti út frá einstaklingsdómi hrúts (40%) og kjötmati afkvæma (60%).
meira

11. júlí 2004
Ísar hæstur í Bluppinu
Stóðhesturinn Ísar frá Keldudal er nú hæstur allra íslenskra stóðhesta í heiminum í Bluppinu, með 128 stig.  Ísar er á fimmta vetri og var sýndur í Svíþjóð í vor.
meira

30. mars 2004
Tveir stóðhestar frá Keldudal í fyrstu verðlaun í vor
Ísar og Vífill í kynbótadóm
Ísar var sýndur í Svíþjóð af Vigni Jónassyni.  Ísar er 4 v og fékk fyrir sköpulag 8,13 og kosti 8,19.  Í aðaleinkunn fékk Ísar því 8,16.
meira

20. janúar 2004
Vífill á leið úr landi
Vífill frá Keldudal til USA
Stóðhesturinn Vífill frá Keldudal hefur nú verið seldur til Bandaríkjanna.  Vífill er undan Hljóm frá Brún og Venus frá Keldudal. Milligöngumaður um söluna var Svanhildur Hall á Hvanneyri.
meira

25. nóvember 2003
Örn frá Keldudal til Svíþjóðar
Í nótt var flutt út fyrsta hrossið frá Keldudal á þessu ári.  Það var folaldið Örn frá Keldudal undan Ísold frá Kirkjubæjarklaustri II og Þokka frá Kýrholti.
meira

28. október 2003
Gæðastjórnun
Hrossum gefið ormalyf og tekin holdastig í dag.
meira

28. október 2003
Tryppin heim
Í dag sóttum við tryppin okkar, sem verið hafa á Brekknaeyju í sumar.

meira

14. október 2003
Ísar seldur
Ísar frá Keldudal til Svíþjóðar.
meira

    
  
Nýr heitur pottur við Leifshús
New hot tub, for 8 persons
Heitur pottur við Leifshús
Heitur pottur við Leifshús
Þá er búið að setja upp heitan pott við Leifshús.
Potturinn er með þægilegum sætum og er fyrir 8 manns.

::Nnar
Tóti og Gunna kaupa Leifshús
Leifshús
Leifshús
Tóti og Gunna eru nú eigendur Leifshúss, sem er gamla íbúðarhúsið í Keldudal. Það var upphaflega byggð árið 1935 en var endurgert árið 1994. Þá var byggð önnur hæð ofan á húsið, það endurgert að innan og klætt að utan. Það var Kristín húsfreyja og fyrrverandi bóndi í Keldudal sem seldi húsið.  Leifshús verður leigt úr sem sumarhús, það er 145 m2, hlýlegt og fallegt hús með góða sál. Tilvalið fyrir 2-3 fjölskyldur eða litla hópa.
::Nnar
Ísold köstuð
fimmtánda folald Ísoldar
Ísold 2010
Ísold 2010

Ísold frá Kirkjubæjarklaustri II kastaði sínu fimmtánda afkvæmi þann 26. júní. Það er brún hryssa undan Þey frá Prestsbæ.  Þrjú afkvæmi Ísoldar hafa verið sýnd í kynbótadómi; Glóð frá Keldudal með 7,8 í aðaleinkunn og Ísól og Örn  frá Keldudal með 8,23 í aðaleinkunn. Örn var sýndur í Svíþjóð í vor og fékk þá 8,04 fyrir byggingu og 8,35 fyrir kosti.

::Nnar
Perla frá Keldudal í kynbótadóm
fékk 7,94 í aðaleinkunn
Perla frá Keldudal
Perla frá Keldudal
::Nnar

Guðrún Lárusdóttir, kt. 240866-5799, Keldudalur, Skagafjördur, North Iceland, 14 km from  Saudarkrokur.
Phone: (00 354) 846 8185  Fax: (00 354) 453-6233  E-mail: keldudalur[at]keldudalur.is  Webpage: www.keldudalur.is

Sast uppfrt: 27. janúar 2008 kl. 22:05
Bi til: 30. desember 2004 kl. 21:05