Í Keldudal í Hegranesi búa Guðrún Lárusdóttir og Þórarinn Leifsson. Þau eiga þrjú uppkomin börn Þórdísi, Sunnu og Þorra. Í Keldudal eru 70 kýr auk 90 annarra nautgripa; kvígna, nauta og kálfa, 80 kindur, 13 geitur og 10 hross. Íslenskar hænur, 2 íslenskir hundar og kettir. Við leigjum út sumararhús og herbergi með eldunaraðstöðu.
Gudrún and Toti live in Keldudalur farm in Skagafjordur. They have three grown children, Thordis, Sunna and Thorri. The live stock is 10 horses, 70 dairy cows, 90 cattle, 80 sheep and 13 goats. Icelandic sheep dogs and catst are also included.
In Keldudalur you can rent a cottage / summerhouse. We offer both made-up beds and sleeping bag accommodation with cooking facilities.
|
Fluga frá Keldudal
12. janúar 2008 Uppskerudagur í ReiðhöllinniKeldudalur Hrossaræktarbú SkagafjarðarHrossaræktarbú Skagafjarðar árið 2007 var Keldudalur í Hegranesi. Því munu þau Þórarinn og Guðrún bændur í Keldudal varðveita Ófeigsbikarinn næsta árið. Það er Hrossaræktarsamband Skagafjarðar sem veitir viðurkenninguna. Þau hross sem valið byggðist á voru Ísól frá Keldudal, sem keppti fyrir Íslands hönd á HM í sumar, og Flosi frá Keldudal en á honum varð Sigurbjörn Bárðarson Íslandsmeistari í gæðingaskeiði í sumar.
Fluga frá Keldudal var valið glæsilegasta folaldið að mati áhorfenda. Fluga er undan Tjörva frá Sunnuhvoli og Ísold frá Kirkjubæjarklaustri II.
Fréttin er tekin af www.horse.is
|
16. júlí 2014 New hot tub, for 8 persons
Heitur pottur við Leifshús
Þá er búið að setja upp heitan pott við Leifshús. Potturinn er með þægilegum sætum og er fyrir 8 manns.
01. apríl 2014
Leifshús
Tóti og Gunna eru nú eigendur Leifshúss, sem er gamla íbúðarhúsið í Keldudal. Það var upphaflega byggð árið 1935 en var endurgert árið 1994. Þá var byggð önnur hæð ofan á húsið, það endurgert að innan og klætt að utan. Það var Kristín húsfreyja og fyrrverandi bóndi í Keldudal sem seldi húsið. Leifshús verður leigt úr sem sumarhús, það er 145 m2, hlýlegt og fallegt hús með góða sál. Tilvalið fyrir 2-3 fjölskyldur eða litla hópa.
27. júní 2010 fimmtánda folald Ísoldar
Ísold 2010
Ísold frá Kirkjubæjarklaustri II kastaði sínu fimmtánda afkvæmi þann 26. júní. Það er brún hryssa undan Þey frá Prestsbæ. Þrjú afkvæmi Ísoldar hafa verið sýnd í kynbótadómi; Glóð frá Keldudal með 7,8 í aðaleinkunn og Ísól og Örn frá Keldudal með 8,23 í aðaleinkunn. Örn var sýndur í Svíþjóð í vor og fékk þá 8,04 fyrir byggingu og 8,35 fyrir kosti.
10. júní 2010 fékk 7,94 í aðaleinkunn
Perla frá Keldudal
|