Flór grafinn 2007
Básar og flór grafið 2009
23. júlí 2009
Fornleifafræðingar á vegum Hólarannsóknarinnar hafa verið hér í Keldudal frá 8. júní við uppgröft á fjósi frá 10. öld. Í ljós hefur komið 18-20 bása fjós svo að hér hefur væntanlega verið stórbýli til forna. Flórinn er hellulagður og sá hluti básanna sem varðveist hefur. Milligerðirnar eru úr torfi og timbri.
Archeologists from Holar have been excavating here in Keldudalur this summer. They have found cowshed from 10th century. We think it has stall for about 18-20 cows.
Frétt af mbl.is 22.07.2009:
Óvenjulega vel varðveitt 10. aldar fjós
Fornleifarannsóknir í Keldudal í Hegranesi í
Skagafirði, sem ráðist var í fyrr í sumar vegna fyrirhugaðra
byggingarframkvæmda, hefur leitt í ljós óvenjulega vel varðveitt fjós
frá 10. öld, það fyrsta sem grafið hefur verið upp á Norðurlandi, að
sögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings. Ennfremur fundust
leifar mannvirkja frá 11. og 12. öld.
Fjósið kom
í ljós rétt vestan við íbúðarhús kúabændanna Þórarins Leifssonar og
Guðrúnar Lárusdóttur í Keldudal, framan við nýja viðbyggingu, þar sem
til stendur að reisa verönd og ganga frá lóðinni umhverfis húsið. Hefur
verið vitað frá árinu 2007 að forn mannvirki leyndust þar í moldu. Áður
hefur m.a. forn grafreitur komið í ljós í Keldudal en rannsóknir hafa
staðið yfir á bænum frá árinu 2002 og tengst Hólarannsókninni sem
Ragnheiður stýrir.
Hátt í tuttugu básar
Hún
segir fjósið vera 10 sinnum 4 metrar að innanmáli, hlaðið úr grjóti og
torfi. Gólfið er hellulagt, um 120 sentímetra breitt í miðju, og liggja
hellurnar enn á sínum stað. Beggja megin við flórinn eru lág steinlögð
þrep fyrir bása sem hafa að líkindum verið átján eða tuttugu eftir
lengd fjóssins.
Austurenda þess hefur verið
raskað og hann að hluta til endurnýttur við húsbyggingu á 11. öld en
vesturendinn er að sögn Ragnheiðar mjög heillegur. Gólfið í básunum
hefur verið þakið með torfi svo að hver bás hefur verið sléttur, mjúkur
og þurr. Á milli básanna virðast hafa staðið viðarþil á lágri
undirstöðu úr torfhnausum.
Frétt Rúv 23.07.2009
http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4467304/2009/07/23/11/